Langholtsskóli taki ekki nóg á einelti 18. maí 2009 05:00 Foreldrar í Langholtsskóla hafa áhyggjur af því að ekki sé tekið nógu vel á eineltismálum sem komi upp innan veggja skólans og tala um óvirkni í skólanum sem hafi viðgengist lengi.Fréttablaðið/anton
Megn óánægja er meðal hóps foreldra í Langholtsskóla með viðbrögð skólans þegar eineltismál koma upp. Unnur Ragnheiður Hauksdóttir og Tina Maria Johnson eiga báðar börn í skólanum sem hafa orðið fyrir einelti. Þeim þykir skólinn ekki taka nógu hratt og vel á eineltismálum. „Dóttir mín talaði um að það væri stúlka í bekknum sem væri mikið að stríða henni í haust og eftir áramót fór þetta að ágerast. Dóttir mín er frekar lágvaxin og stúlkan var til dæmis galandi og gólandi yfir alla í bekknum að hún væri dvergur. Kennarinn lofaði að tala við yfirvöld skólans og því hélt ég að þetta væri í einhverjum farvegi,“ segir Unnur. „Síðan fór þetta að ágerast og ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta væri farið að dreifast um hverfið. Dóttur minni var farið að líða svo illa að ég tók hana úr skólanum um tíma. Við foreldarnir fórum með hana út úr bænum og fórum svo niður í skóla að ræða við skólastjórann. Mér fannst óskaplega lítið gert úr þessu hjá honum,“ segir Unnur. „Hann fór að tína eitt og eitt barn út úr bekknum til að tala við án vitundar foreldra en foreldrarnir vita ekki af þessu nema þeir sem ég hef talað við. Skólastjórinn hélt að með því að gerandinn kæmi til okkar og bæðist afsökunar þá væri málið búið. Að því er virðist átti ekki meira að gerast. Nú er þetta afgreitt mál en ég er ekki sátt við það. Ég vil til dæmis að stelpan fái sálfræðiaðstoð,“ segir hún og telur óvirknina í skólanum hafa viðgengist lengi. Tina Maria á tvo drengi, sem báðir eru eða hafa verið í Langholtsskóla og hafa orðið fyrir einelti. Hún er mjög reið yfir því hversu lítið er tekið á eineltismálum í skólanum. Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri hafnar því að slælega sé tekið á eineltismálum í skólanum. Hann bendir á að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum og segir að farið sé eftir þeirri aðgerðaáætlun í hvívetna. Hann vill ekki ræða einstök mál sem hafa komið upp innan skólans. Fjóla Íris Stefánsdóttir, formaður Foreldrafélags Langholtsskóla, segist ekki hafa heyrt af alvarlegum eineltismálum í Langholtsskóla upp á síðkastið. Hún segir að ástandið hafi batnað mikið eftir að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum. ghs@frettabladid.is
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Erlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Fleiri fréttir Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Sjá meira