Innlent

Enginn blús í tónskólunum

Sigurður Sævarsson Formaður Félags tónlistarskólastjóra segir hagnaðar­sjónarmið ekki ráða rekstri skólanna.
Sigurður Sævarsson Formaður Félags tónlistarskólastjóra segir hagnaðar­sjónarmið ekki ráða rekstri skólanna.

Foreldrar virðast ekki ætla að draga úr tónlistarmenntun barna sinna í kreppunni. Sigurður Sævarsson, formaður Félags tónlistarskólastjóra, segist ekki hafa orðið var við neina breytingu á fjölda fyrirspurna eða umsókna fyrir næsta ár, enn sem komið er.

„En ég reikna nú samt með því að eldra fólk, sem hefur þetta að tómstundagamni og hefur orðið fyrir tekjuskerðingu, hugsi sig tvisvar um," segir hann. Sérstaklega hafi komið á óvart mikil ásókn í söngnám, sem kostar á bilinu 150 til 200 þúsund á ári. Fyrir algengasta grunnnámið, svo sem píanónám, þurfa foreldrar að borga milli 90 og 110 þúsund á ári, fyrir skólavist frá september og fram í maí. Borgin bætir ofan á það um 320.000 krónum að meðaltali fyrir hvern nemanda, en ríkið kemur ekki að tónlistarnámi barna. Til stóð að skera þetta framlag niður um tólf prósent, en borgin er nú að leita viðbótarfjárveitingar, enda höfðu skólarnir ekki gert ráð fyrir niðurskurðinum á þessu ári.

Sigurður segir skólana flesta rekna á núlli, í besta falli. „Þetta er ekki rekið með hagnað í huga, en ekki heldur til að safna skuldum. Ef fellur til peningur þá endur­nýjum við hljóðfærakostinn," segir hann. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×