Ólafía Hrönn verður miðill 18. maí 2009 03:45 Sumarlandið Grímur Hákonarson er að fara að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Hún heitir Sumarlandið og skartar Ólafíu Hrönn og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum. Fréttablaðið/Valli „
Við byrjum tökur í júlí og ef allt gengur samkvæmt áætlun er ráðgert að þeim ljúki í ágúst,“ segir Grímur Hákonarson. Hann er að fara að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd eftir mikla velgengni á stuttmyndasviðinu. Nægir þar að nefna Slavek the Shit og Bræðrabyltu sem báðar hafa hlotið fjölmörg verðlaun á alþjóðlegum hátíðum. Það er kvikmyndafyrirtæki Baltasars Kormáks, Blue Eyes, sem framleiðir myndina en einvalalið tæknifólks kemur að gerð hennar: Ari Kristinsson verður á bak við tökuvélina og Linda Stefánsdóttir sér um leikmyndahönnunina. Sumarlandið er kolsvört kómedía með þeim Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum; Ólafía leikur miðil af gamla skólanum en Kjartan er eiginmaður hennar. „Persóna Ólafíu er byggð á þekktum miðlum á borð við Erlu Stefánsdóttur og Þórunni Maggý. Hún er ekki með nein spil eða spákúlu heldur er bara í góðu sambandi við hina framliðnu, er hálfgerður sálusorgari fyrir syrgjendur,“ segir Grímur. Persóna Kjartans er hins vegar illa smituð af 2007-hugsunarhættinum þar sem allt var til sölu, álfar, tröll og bara spíritisminn eins og hann leggur sig. „Hann reynir að markaðssetja þetta allt af miklum móð.“ Upphaflega stóð til að myndin færi í tökur síðasta haust en ekki náðist að fjármagna myndina að fullu. Grímur kveðst hálffeginn yfir þeirri lendingu. „Ég nýtti veturinn til að fara aðeins betur yfir handritið og fékk Ólaf Egil Egilsson til að fara aðeins yfir það með mér.“ Leikstjórinn segist tilbúinn fyrir kvikmynd í fullri lengd, þetta sé eitthvað sem hann hafi alltaf stefnt að. „Annars finnst mér lítill munur á stuttmyndum og kvikmyndum í fullri lengd, þetta er bara aðeins meiri vinna, lengri tökutími en annars voðalega svipað,“ segir Grímur sem gerir sér þó fyllilega grein fyrir því að svona kvikmyndagerð fylgir meiri pressa. „Sem betur fer er Sumarlandið tiltölulega einföld mynd, hún gerist mestmegnis á sama staðnum. Hún er enginn Myrkrahöfðingi, slík mynd kemur bara seinna.“ freyrgigja@frettabladid.is Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona framleiðir Utan gátta boli Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira