„Það er gaman að vera Íslendingur" - myndir 18. maí 2009 13:41 „Það var æðislegt að koma heim. Ég er núna að dúlla í garðinum, komin með græna fingur með mold á nefinu," segir Hera Björk. MYNDIR/VALLI.
Á meðfylgjandi myndum, sem Valgarður Gíslason ljósmyndari tók, má sjá þegar fjöldi fólks hyllti Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur sem söng lagið Is It True? með dyggum stuðningi Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, Friðriks Ómars Hjörleifssonar og Ernu Hrannar Ólafsdóttur í bakröddum í Moskvu. Vísir hafði samband við Heru Björk og spurði út í móttökur íslensku þjóðarinnar, Moskvu og hvort hún væri nokkuð leið yfir að hafa ekki fengið að syngja fyrir Danmörku í ár. „Ég fann það sterkt þarna úti að ég vil keppa fyrir Íslands hönd því ég er hreinræktaðar Íslendingur. Þjóðarstoltið er mikið og gaman að vera Íslendingur," segir Hera. „Gærdagurinn var æðislegur. Það var meiriháttar að koma heim og fá svona æðislegar móttökur." „Við vorum nýkomin úr skítakulda í Moskvu. Það var ekki hægt að fá betri móttökur. Landið í sínu besta skrúða og allir brosandi," svarar Hera. „Við erum búin að vera úti í tvær vikur og orðin pínu rússnesk. Við þurftum að sætta okkur við það að sýna passann á hverju götuhorni." „Við komumst til að mynda ekki upp á hótelherbergin okkar nema sýna lykil og sérstakt blað sem sannaði að við værum hótelgestir. Já þetta er satt! Þetta er bara Rússland," segir Hera. „Það var svolítið erfitt fyrir frelsishetjuna Heru frá Íslandi að koma sér fyrir í svona aðstæðum en ég gerði það bara og við vorum skemmtilegur hópur og knúsuðum hvort annað þeim mun meira." Ertu leið yfir því að hafa ekki fengið tækifæri á að syngja fyrir Dani? „Nei ekki til! Auðvitað hefði verið frábært að fara fyrir Danmörku og fara á móti Jóhönnu Guðrúnu en það hefði verið þrælerfitt." „Danir hefðu þá verið með í toppbaráttunni. Það er ekki efi í hjarta mínu um það. Þá hefði þjóðin eflaust klofnað og maður nennir ekki að standa í því," segir Hera hlæjandi. Keppir þú ekki bara næst fyrir Íslands hönd? „Ég á pottþétt eftir að fara. Það er í spilunum mínum og ég vona að það verði fyrir Ísland." „Ég fann það sterkt þarna úti að ég vil keppa fyrir Íslands hönd því ég er hreinræktaðar Íslendingur. Þjóðarstoltið er mikið og gaman að vera Íslendingur." „Við erum búin að vera úti í tvær vikur og orðin pínu rússnesk. Við þurftum að sætta okkur við það að sýna passann á hverju götuhorni."
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira