Innlent

Lífsýni tekið úr dóttur Fischers

Andri Ólafson skrifar

Lífsýni úr Bobby Fischer verður borið saman úr lífsýni sem tekið var úr filippseyskri stúlku í vikunni en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Móðir stúlkunnar hefur fyrir hönd dóttur sinnar gert kröfu í dánarbúið sem er metið á 270 milljónir.

Marilyn Young, fyrrum ástkona skákmannsins Bobby Fischer, er stödd hér á landi ásamt dóttir sinni Jinky, en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Mæðgurnar eru frá Filippseyjum en Fischer var á leiðinni þangað að hitta Marilyn þegar hann var handtekinn á flugvellinum í Tókýó árið 2005 en þá hófst sú sérkennilega atburðarrás sem endaði með því að Fischer var veittur íslenskur ríkisborgararéttur.

Marilyn þessi hyggst gera kröfu í dánarbú Fischers fyrir hönd dóttur sinnar. Áður höfðu komið fram tvær aðrar kröfur í dánarbúið, ein frá Miyoko Watai japanskri ekkju Fischers, og önnur frá systrabörnum hans.

Til þess að liðka fyrir þessari kröfu mun Marylin samhliða þessu höfða faðernismál til að færa sönnur á að Fischer sé í raun faðir Jinky. Einn liður í því ferli var heimsókn hennar á landspítalann í vikunni þar sem lífsýni var tekið úr dóttir hennar.

Það lífsýni verður svo borið saman við lífsýni úr Fischer, ef það er til. Ef ekki finnst nothæft lífsýni úr Fischer verður leitað til eftirlifandi ættingja hans, systrasonanna. Ef þeir fást ekki til að gefa sýni er aðeins eitt úrræði eftir, að grafa upp líkamsleifar skákmeistarans og taka úr þeim sýni.

Þetta er í annað sinn sinn sem Marilyn Young kemur til Íslands. Í fyrra skiptið var Fischer enn á lífi og mæðgurnar heimsóttu hann og eyddu með honum tíma.

Nú heimsóttu mæðgurnar hins vegar aðeins leiði Fischers rétt fyrir utan Selfoss.

Dánarbú Fischers er veglegt. Metið á rúmar 270 milljónir króna en Fischer átti reikning í Landsbankanum þegar hann lést þar sem hann geymdi evrur og gull.






Tengdar fréttir

Dóttir Fischers komin til Íslands og farin

Marilyn Young, fyrrum ástkona skákmannsins Bobby Fischer,var stödd hér á landi ásamt dóttir sinni Jinky, en hún er sögð dóttir skákmeistarans. Marilyn hyggst gera kröfu í dánarbú Fischers fyrir hönd dóttur sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×