Innlent

Sluppu nær ómeiddir úr bílveltu

Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar jeppi þeirra valt út af Hrunamannavegi, skammt frá Flúðum í nótt. Hann valt tvær heilar veltur og er stórskemmdur ef ekki ónýtur. Mennirnir voru fluttir til læknis að Laugarási, þar sem þeir fengu aðhlynningu. Flughálka var á veginum þar sem slysið varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×