Innlent

Ásdís Halla ætlar ekki á þing

Ásdís Halla Bragadóttir.
Ásdís Halla Bragadóttir.
Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna þingkosninga í vor. „Fyrir fjórum árum ákvað ég að snúa mér að fyrirtækjarekstri og hætta í stjórnmálum. Ég hef ekki tekið þátt í stjórnmálastarfi á þessum tíma og síðastliðið eitt og hálft ár hef ég verið að reka fjárfestinga- og rekstrarfélag sem er í örum vexti og gengur vel," segir Ásdís Halla.

Ásdís Halla var um skeið virk í starfi Sjálfstæðisflokksins. Hún var meðal annars formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, framkvæmdastjóri þingflokksins og bæjarstjóri í Garðabæ. Hart hefur verið lagt að Ásdísi að snúa aftur í stjórnmál og gefa kost á sér til þingframboðs „Ég hef ekki ætlað mér að snúa aftur í stjórnmál en ég lofaði því í síðustu viku að ég myndi hugsa mig um. Ég gaf mér nokkra daga til þess og komst að þeirri niðurstöðu að ég ætla að halda áfram í fyrirtækjarekstri sem er ekki síður mikilvægur á þessum tímum. Ég mun því ekki gefa kost á mér í prófkjöri," segir Ásdís Halla.




Tengdar fréttir

Ásdís Halla íhugar forystuframboð í Reykjavík

Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrum bæjarstjóri í Garðabæ, íhugar framboð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar. Samkvæmt heimildum Vísis stefnir hún á að leiða lista í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×