Frestun á mánuði ekki góð leið 3. desember 2009 04:00 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Ekki er víst að skynsamlegt sé að fresta töku eins mánaðar af fæðingarorlofi þar til eftir þrjú ár segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir formaður félagsmálanefndar. Í frumvarpi félagsmálaráðherra um breytingar á fæðingarorlofi er gert ráð fyrir því að foreldrum gefist kostur á því að taka átta mánuði í fæðingarorlof og fá 350 þúsund krónur á mánuði að hámarki eins og nú er, og fresta töku eins mánaðar þar til barnið verður þriggja ára. Þeir mega einnig dreifa fjárhæðinni á fleiri mánuði en þá fellur rétturinn á aukamánuðinum niður. Sigríður Ingibjörg segir að skoða þurfi alla útreikninga í tengslum við breytingartillögurnar og afleiðingarnar fyrir börn og foreldra, meta kosti og galla. Ekki sé víst að ríkið sé sérlega vel í stakk búið til að greiða aukamánuðinn eftir þrjú ár, meta þurfi hversu stór hluti foreldra muni geyma mánuðinn. Þar fyrir utan verði að skoða hvernig sveitarfélög séu í stakk búin til að taka fyrr við börnum í daggæslu. Sigríður Ingibjörg bendir á að 1.200 milljónir vanti í sjóðinn til að mæta áætluðum útgjöldum á næsta ári, skera þurfi niður sem því nemur. Nauðsynlegt sé að skoða fleiri leiðir, þar á meðal fyrstu tillögu ráðherra sem fól í sér lækkun hámarksgreiðslna í 300 þúsund. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum og lagt fyrir félagsmálanefnd að lokinni fyrstu umræðu eins og venja er. Guðmundur Steingrímsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í félagsmálanefnd, segist ekki sérstaklega hrifinn af hugmyndum sem lúta að styttingu orlofsins. Ef skera þurfi niður eigi frekar að lækka hámarksgreiðslur, en hlífa þeim sem hafa minnst. Hann bendir á að auðveldara sé að endurskoða ákvæði um hámarksupphæð þegar rofar til heldur en að fjölga mánuðum í orlofi. Framtíðarmarkmiðið eigi vitaskuld að vera að lengja það. - sbt
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira