Formannsefni kynna áherslur sínar í dag 17. janúar 2009 09:49 Flokksþing framsóknarmanna var sett í gær.
Landsfundi Framsóknarflokksins verður framhaldið í Vodafonehöllinni í dag, en landsfundurinn samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær að Ísland gangi til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. Í dag ber hæst kappræða milli þeirra manna sem hafa boðið sig fram til embættis formanns í flokknum. Kappræðurnar hefjast klukkan hálf eitt og standa í níutíu mínútur undir stjórn Guðmundar Steingrímssonar, sem er nýgenginn til liðs við flokkinn eftir að hann gekk úr Samfylkingunni. Stefnubreyting Framsóknarflokksins í evrópumálum er söguleg. Hún var samþykkt með ýmsum skilyrðum, eins og að forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar verði ávallt tryggt og að Íslendingar geti sagt sig úr sambandinu kjósi þeir svo. Kosið verður í embætti flokksins á lokadegi landsfundarins á morgun. Í framboði til varaformanns eru Siv Friðleifsdóttir og Birkir Jón Jónsson alþingismenn. Sæunn Stefánsdóttir núverandi ritari flokksins sækist áfram eftir kjöri en um það embætti keppa einnig Eygló Harðardóttir alþingismaður og Gunnar Bragi Sveinsson frá Sauðárkróki.
Mest lesið Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Erlent Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Innlent Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Erlent Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Erlent Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Innlent Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Innlent Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Innlent Hefur leit að nýjum saksóknara Innlent Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Sjá meira