Barnahjálpin í Keníu í miklum kröggum 7. september 2009 05:00 Guðrún Margrét Pálsdóttir
Lágt gengi íslensku krónunnar hefur haft afar slæm áhrif á hjálparstarf ABC barnahjálpar í Keníu. Að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, formanns samtakanna, er nauðsynlegt að fá aukið fjármagn ef samtökin eiga að geta sinnt áfram öllum þeim börnum sem nú dvelja á barnaheimilinu í Keníu, en samtökin styðja um sex hundruð börn og þar af eru eitt hundrað og sextíu börn í heimavist. „Full umönnun barna er afar kostnaðarsöm og er því staðan hjá okkur sú að á núverandi gengi duga framlög stuðningsaðila ekki til framfærslu heimavistarbarnanna. Í janúar þurftum við að vísa börnum frá því fjárhagsstaða okkar var orðin svo slæm. Núna stöndum við aftur frammi fyrir því að ekki er til peningur til matarinnkaupa, en í stað þess að grípa til þess örþrifaráðs að vísa börnunum frá aftur ákváðum við að sleppa heldur öllu sem við getum verið án, líkt og tannkremi, sápu, mjólk og brauði,“ segir Guðrún Margrét. Auk óhagstæðs gengis krónunnar segir Guðrún Margrét að matvælaverð hafi hækkað umtalsvert í Keníu og því hrökkvi peningarnir skammt. Börnin sem dvelja á barnaheimili samtakanna hafa fæst í önnur hús að venda og verði þeim vísað frá fara þau aftur í sömu bágbornu aðstæðurnar og þeim var bjargað frá í upphafi. „Það dugar skammt að reyna að endurskipuleggja okkur og skera við nögl, við skuldum nú þegar um 10 þúsund dollara í matarreikninga og húsaleigu og höfum notað rekstrarfé þessa mánaðar til að gera upp skólagjöld síðustu annar og þurfum því 27 þúsund dollara til að hafa mánuðinn af. Það sem heldur okkur gangandi er að við væntum kraftaverks og trúum því að kraftaverk gerist svo við getum haldið starfi okkar í Keníu áfram. Góðu fréttirnar eru þó þær að börnin geta haldið áfram að stunda nám. Okkur finnst sérstaklega mikilvægt að börnin hljóti varanlega hjálp í formi skólagöngu og það væri grátlegt að missa það niður því mörg barnanna hafa fengið mjög takmarkaða menntun.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Sjá meira