Skoða stofnun orkusamlaga 7. september 2009 03:45 iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir segir gríðarlega mikilvægt að tryggja að næg orka sé til afhendingar þeim græna iðnaði sem reynt er að laða til landsins. fréttablaðið/gva
Til skoðunar er í iðnaðarráðuneytinu að stofna sérstök félög um orkuframkvæmdir og fá lífeyrissjóði og erlenda fjárfesta að borðinu. Iðnaðarráðherra segir að mjög mikilvægt sé að hefja framkvæmdir til að geta selt orku, vöntun sé á henni í dag. Þá eru hugmyndir uppi um að orkusamlögin gætu stofnað sér félög um einstakar framkvæmdir og þær yrðu þá utan við efnahagsreikninga orkufyrirtækjanna. Þau félög sæju bæði um orkuvinnsluna og framkvæmdina af hálfu kaupandans, sem yrði hluti hvers félags fyrir sig. Óljóst er hvort um eitt orkusamlag yrði að ræða fyrir allt landið, eða tvö; eitt á Norðausturlandi og annað á Suðvesturlandi. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir stjórnvöld vinna að því að laða fyrirtæki í grænum iðnaði til landsins. Til þess að það gangi upp þurfi að geta afhent næga orku, á því sé skortur nú. Fjármagn vanti til að fara í virkjanir sem eru á teikniborðinu nú þegar, svo sem Búðarhálsvirkjun og jarðvarmavirkjanir á Hellisheiði og víðar. Þá er unnið að rammalöggjöf um ívilnanir til handa nýjum fjárfestum. Katrín segir það gríðarlega mikilvægt að allar reglur liggi skýrar fyrir hvað þessi mál varðar, í stað þess að semja sérstaklega við einstök fyrirtæki.- kóp
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Sjá meira