Sameing háskólanna rædd 7. september 2009 05:30 Menntamálaráðherra vill að allir möguleikar séu skoðaðir í sameiningu skóla á háskólastigi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Menntamálaráðherra fundar í dag með stjórnendum háskólanna um sameiningu ákveðinnar starfsemi skólanna. Er þar sérstaklega horft til stoðþjónustunnar, að innritun verði sameiginleg. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að unnið verði að málinu í vetur og hún vonist til að sjá raunhæfar tillögur um framtíðarskipan háskólamála í vor. Nokkrar viðræður hafa átt sér stað á milli ýmissa skóla um mögulega sameiningu. Er þar helst að telja viðræður á milli Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Upp úr þeim viðræðum slitnaði, ekki síst þar sem stjórnendur Listaháskólans töldu starfsemi skólans þess eðlis að eðlilegt væri að um hana væri sér stofnun. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að ýmsir aðrir sameiningarkostir hafi verið ræddir og stjórnendur hinna ólíkustu skóla hafi rætt saman og viðrað mögulegt samstarf eða sameiningu. Menntamálaráðherra segist sjá ýmsa kosti í þessum efnum og vill að aðilar ræði málin með opnum huga. „Við gefum okkur veturinn til að vinna úr tillögunum og auðvitað væri gaman ef hægt væri að ljúka málinu áður en næst verður innritað í skólana. Við sjáum vonandi fyrstu skrefin strax í haust.“- kóp
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira