Telur samning um HS gegn anda laga 7. september 2009 05:00
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur sent bæjarstjóra og bæjarstjórn Reykjanesbæjar bréf þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að samningur bæjarfélagsins við HS orku, um afnot af orkuauðlindum í eigu bæjarins, gangi lengra en gert er ráð fyrir í lögum um afnotarétt á jarðhita og vatnsréttindum. Ráðherra telur að leigutíminn, 65 ár, sé of langur. Katrín segir að í lögunum sé vissulega rætt um að hámarkstími afnotaréttar sé 65 ár. Þar sé hins vegar gert ráð fyrir að þegar helmingur leigutímans sé liðinn fari fram viðræður á milli stjórnvalda og handhafa réttindanna. Niðurstaða þeirra viðræðna gæti verið framlenging samnings, en allt eins uppsögn. Þess vegna sé óeðlilegt að gefa sér þær forsendur í upphafi að leigutíminn verði 65 ár. Í samningnum á milli sveitarfélagsins og HS orku er sú forsenda gefin að „HS orka hf. eigi rétt á framlengingu réttarins eftir lok þessa samnings í samræmi við gildandi lög". „Ég tel að þarna gangi menn of langt og þetta fari gegn anda laganna. Ég óskaði eftir viðbrögðum sveitarfélagsins. Menn ganga of langt með því að gera ráð fyrir að sjálfkrafa verði af framlengingu," segir Katrín. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að samningurinn sé fyllilega í samræmi við löggjöf, enda hafi menn beðið með samningagerð þar til lögin voru tilbúin. Hann segir sjálfsagt að skoða málin í samráði við ráðuneytið, að því gefnu að bæjarfélagið fari ekki halloka í því. Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um fyrirkomulag varðandi leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins. Hún átti að skila af sér 1. júní, en hefur fengið frest til áramóta. Ráðherra telur að endurskoða eigi samninginn við HS orku í ljósi niðurstöðu þeirrar nefndar. Sjálf telur hún 65 ár vera of langan tíma og stytta ætti hámarks nýtingartímann. - kóp
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Sjá meira