Innlent

Norðmenn komnir til æfinga

Harstad á hafi úti Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar byggir á sömu teikningu og Harstad. Íslenska skipið verður þó stærra og betur búið.mynd/lhg
Harstad á hafi úti Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar byggir á sömu teikningu og Harstad. Íslenska skipið verður þó stærra og betur búið.mynd/lhg

Norska varðskipið Harstad kom til Reykjavíkur í gær en skipið er hér á landi í boði Landhelgisgæslunnar. Skipið er systurskip íslenska varðskipsins Þórs, sem er í smíðum í Chile og kemur til landsins innan tíðar.

Heimsókn Harstad er liður í samstarfi á milli Landhelgisgæslunnar og norsku strandgæslunnar á sviði strandgæslu, öryggismála, leitar og björgunar sem byggir á samningi frá árinu 2008. Samkomulagið er á sviði sameiginlegra aðgerða vegna hugsanlegra mengunarslysa, fiskveiðieftirlits, skipta á skipaumferðarupplýsingum, leitar og björgunar á hafinu og ýmissa annarra málefna er tengjast verkefnum á sviði strandgæslu.

Á morgun og föstudag verður varðskipið við æfingar með varðskipi og þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Harstad kemur síðan inn til Reykjavíkur aftur um helgina og verður til sýnis fyrir almenning á sjómannadaginn 7. júní frá klukkan 13.30 til 17.00 þar sem það mun liggja við Miðbakkann í Reykjavík. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×