Ókláruð plata sett á netið 9. maí 2009 05:00 riceboy sleeps Jónsi og Alex koma fram undir nafninu Riceboy Sleeps. Fyrsta plata þeirra verður gefin út í sumar. fréttablaðið/gva
Fyrstu plötu Jónsa í Sigur Rós og og kærastans Alex Somers undir yfirskriftinni Riceboy Sleeps hefur verið lekið á netið, rúmum tveimur mánuðum fyrir útgáfudag. „Þetta er rosalega snemmt eitthvað. Það er svo langt þangað til hún kemur út,“ segir Jónsi, sem hafði ekkert frétt af lekanum. Hann segist vera ósáttur við tíðindin, sérstaklega vegna þess að platan er ekki fullkláruð. „Það er það eina leiðinlega við þetta,“ segir hann og Alex tekur í sama streng: „Við hefðum ekki haft yfir neinu að kvarta ef kláruð útgáfa af plötunni hefði farið á netið. En það veldur mér vonbrigðum að „grófu mixin“ séu komin þangað. Engu síður erum við að vissu leyti bara ánægðir að fólki vilji hlusta á okkur.“ Jónsi segist íhuga að leggja fram kvörtun yfir lekanum í von um að skrúfað verði fyrir hann. Plötum Sigur Rósar hefur í gegnum árin verið lekið á netið en ekki eins snemma og þessari. „Stundum er þetta gott og stundum er þetta vont. Þetta var að vissu marki gott fyrir okkur í Sigur Rós þegar við vorum að byrja. Þegar plöturnar láku á netið kynntu þær fullt af fólki fyrir tónlistinni,“ segir Jónsi. Nýja platan, sem er að stórum hluta ósungin, kemur út í Evrópu á vegum Parlophone 20. júlí. Hún verður fáanleg í nokkrum útgáfum, eða á geisladiski, í stafrænu formi, á tvöföldum vínyl og í kassa með auka EP-plötu. Þarna verður vitaskuld um fullkláraða útgáfu að ræða og má telja líklegt að æstir aðdáendur Sigur Rósar vilji frekar bíða aðeins lengur eftir henni en að hlusta á verk sem enn á eftir að ljúka við. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira