Hreppti þúsund dollara skólastyrk á þekktri hátíð 9. maí 2009 08:30 efnilegur árni beinteinn Var valinn besti kvikmyndagerðarmaðurinn undir átján ára aldri á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Nashville. „
Þetta er gífurlega mikill heiður. Þessu fylgja verðlaun sem hljóða upp á hvorki meira né minna en tíu þúsund dollara skólastyrk í kvikmyndaskóla í Nashville,“ segir Árni Beinteinn, hinn ungi og bráðefnilegi kvikmyndagerðarmaður með meiru. Hann hreppti nýverið titilinn „The Best Young Filmmaker“ á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Nashville, Nashville Film Festival, sem haldin var í fertugasta sinn. Stuttmynd Árna Beinteins „Auga fyrir auga“, sem frumsýnd var fyrir réttu ári, var á þessari stóru og virtu kvikmyndahátíð sem svo leiddi til þess að Árni Beinteinn hlaut þennan tilkomumikla titil: Besti kvikmyndagerðarmaðurinn undir átján ára aldri. Og ekki gerir það árangur hans minni að Árni er nýlega orðinn fjórtán ára og var því að keppa við sér eldri menn. „Ég og Kvikmyndamiðstöð einnig höfum verið að senda myndina á ýmsar hátíðir. Fjöldi mynda berst á Nashville-hátíðina og af þeim eru tíu valdar úr og þær sýndar í kvikmyndahúsi á hátíðinni. Dómnefnd fer yfir þetta og ég var sem sagt valinn,“ segir Árni. Sem nú íhugar hinn rausnarlega skólastyrk sem fylgir verðlaununum og veltir fyrir sér kvikmyndaskólanum – en honum sýnist þetta vera háskóli og hann þarf helst að vera átján ára til að sækja hann. „Þetta er aðallega heiðurinn og meira en lítill heiður. Og mun vonandi verða myndinni og mér til framdráttar. Ég er alltaf með nokkrar myndir á teikniborðinu. Spennandi væri að fá tækifæri til að gera aðra mynd í sumar. Maður verður að halda sér við svo maður gleymi þessu ekki,“ segir Árni, sem fór ekki til Nashville sökum anna en fjöldi þekktra nafna úr kvikmyndabransanum var á hátíðinni. Má þar nefna menn á borð við William Shatner, Vincent D‘Onofrio og hinn aldna höfðingja Hal Holbrook. Undanfarna þrjá mánuði hefur Árni verið að æfa baki í brotnu veigamikið hlutverk sem hann fer með í Söngvaseiði. Fréttablaðið ræddi við Árna á frumsýningardag (í gær) og var hann spenntur heima við að undirbúa sig og fullur tilhlökkunar fyrir kvöldið. „Nei, ekkert stressaður. Bara spenntur,“ segir Árni Beinteinn – fjölhæfur með afbrigðum og á framtíðina fyrir sér. jakob@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira