De Niro á Kjarvalsstöðum 9. maí 2009 08:00 robert de niro eldri Eins og sjá má eru líkindin með Robert De Niro eldri og syni hans afar mikil.
Robert De Niro verður á meðal listamanna á sýningunni Frá Unuhúsi til Áttunda strætis sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum 15. maí. Ekki er þó um leikarann heimsfræga að ræða heldur föður hans sem lést árið 1993. Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur, segir að De Niro eldri hafi verið afar virtur listmálari. „Það er nokkuð sem fæstir vita. Það eru mörg fín verk eftir hann,“ segir hún. Hann lagði stund á málaralistina hjá sama lærimeistara og Louisa Matthíasdóttir og Nína Tryggvadóttir en einnig verða sýnd verk eftir þær sem hafa ekki sést áður hér á landi. Verk Louisu og Nínu eru frá miðri síðustu öld þegar þær voru fastagestir í Unuhúsi og frá námsárum þeirra í New York hjá Hans Hofmann, þeim sama og kenndi De Niro. „Þetta var ákveðinn vinahópur sem hékk saman,“ segir Soffía. Verk Hofmanns verða einnig á sýningunni ásamt verkum tveggja annarra nemenda. Gríðarleg tryggingarverðmæti fylgja verkunum og að sögn Soffíu eru þau metin á hálfan milljarð króna. „Þetta eru verk sem við erum að fá að utan með miklum tilkostnaði enda eru þetta svo virtir málarar. Við teljum okkur lukkunnar pamfíla að hafa fengið þessi verk.“ Hún segir De Niro yngri ekkert koma nálægt sýningunni. „Það er ákveðið gallerí sem fer með verk föður hans og við fáum verkin lánuð þaðan. Hann kemur ekki nálægt því en þetta er faðir hans og hann hlýtur að fylgjast með og eiga einhver verk eftir hann. Það er óneitanlega skemmtilegt að sjá þessa nýju hlið á Robert De Niro.“- fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira