Einsleit nefnd um RÚV 2. júní 2009 06:00 Fyrrverandi ráðherra staðfestir að til séu ótal skýrslur um RÚV í skúffum ráðuneytisins – en ný einsleit nefnd um málefni RÚV leit dagsins ljós í vikunni.
Svo virðist sem starfshópur sem á að fjalla um málefni Ríkisútvarpsins komi aðeins úr einni átt: Annaðhvort úr Vinstri grænum eða Ríkisútvarpinu sjálfu nema hvoru tveggja sé. „Skipanin er sérstök og maður veltir því fyrir sér hvort auka eigi pólitísk afskipti af Ríkisútvarpinu með skipan þessarar nefndar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra. Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefði skipað starfshóp sem ætti að skoða málefni RÚV og hlutverk þess sem almannaútvarps. Nefndarmenn flestir, ef ekki allir, tengjast Vinstri grænum með einum eða öðrum hætti og öll utan Kristínar Helgu Gunnarsdóttur rithöfundar eru fyrrverandi starfsmenn Ríkisútvarpsins. Sigtryggur Magnason, aðstoðarmaður Katrínar, fer fyrir hópnum en kona hans Bergljót Haraldsdóttir starfar hjá RÚV. Laufey Guðjónsdóttir hjá Kvikmyndamiðstöð var innkaupamaður hjá RÚV, Sigríður Árnadóttir er fyrrverandi aðstoðarmaður Stefáns Jóns Hafstein á Rás 2 og síðar fréttamaður á RÚV, Þorbjörn Broddason prófessor við Háskólann, bróðir Brodda, sat í útvarpsráði, Ágúst Þór Árnason aðjúnkt við Háskólann á Akureyri var fréttamaður á RÚV og dagskrárgerðarmaður þar, Hjálmar Sigurðsson er svo fyrrverandi leiklistarstjóri hjá RÚV og rödd stofnunarinnar – en hann les gjarnan kynningar fyrir Ríkisútvarpið. Þorgerður segir að reynt hafi verið í sinni tíð að slíta á öll pólitísk tengsl milli RÚV og stjórnmálamanna með því að fela stjórn útvarpsins öll völd. En nú virðist sem stíga eigi til baka. Hún þekkir vel til hvað leynist í skúffum ráðuneytisins og staðfestir að til sé ótölulegur fjöldi skýrslna um RÚV. Spurð hvort eðlilegt sé að veitt sé af almannafé til að gera enn eina skýrsluna segir Þorgerður eðlilegt að menn meti á þessum tímapunkti hverju árangursstjórnunarsamningur milli ríkis og RÚV hafi skilað. jakob@frettabladid.is Nefndin sem á að skoða málefni RÚV Meðal þeirra sem eiga að skoða málefni RÚV eru Sigtryggur Magnason, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Þorbjörn Broddason. 3 d f g h j
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira