Faðir fimm ára stúlkunnar: Við reynum að jafna okkur Telma Tómasson. skrifar 28. september 2009 18:35
Fjölskylda litlu stúlkunnar, sem varð fyrir lífshættulegri hnífsstungu í gær, er í áfalli eftir árásina. Ellefu ára systir hennar varð vitni að árásinni og reyndi að vara systur sína við. Stúlkan er á batavegi. Hún er gerð úr stáli segir faðir hennar. Álfheiður Björk, fimm ára, og systir hennar, sem er ellefu ára, voru að horfa á teiknimynd á heimili sínu við Suðurgötu í Keflavík í gærmorgun þegar bankað var á útidyrahurðina. Foreldrarnir voru þá staddir á efri hæð hússins. „Og við heyrum að það er bankað. Við erum ekkert að spá í þetta heyrum öskrað og hlaupum niður. Þá stendur yngri stelpan og er eitthvað að fipast í bolnum sínum. Ég hélt að þetta væri pöddu fríkát - að hún hefði fengið könguló á sig. En svo lyftir konan mín bolnum upp og þá er allt út í blóði," segir Óskar Harðarson faðir stúlknanna. Eldri systirin sá hvað gerðist út um stofugluggann og reyndi að vara systur sína við að fara til dyra. Álfheiður litla Björk man eftir því sem gerðist. „Hún segir bara að hafa verið bankað og hún farið til dyra. Einhver kona rekist í hana og hún hlaupið inn. Það er það eina sem hún spáir í," segir Óskar. Aðspurður hvernig fjölskyldan hafi upplifað þetta hrikalega atvik segir Óskar að þetta hafi auðvitað verið mikið sjokk. „Við reynum að jafna okkur hægt og rólega. Það Voðalega gott fólk hérna." Fjölskyldan talaði við prest og segir Óskar að það hafi hjálpað mikið. „Hann hjálpaði eldri stelpunni mikið sem varð vitni að þessu. Hann róaði hana og hún er öll að koma til, en hún er enn í svakalegu sjokki yfir þessu." Og litla telpan er öll að braggast að sögn óskars: „Hún er bara uppi að horfa á skrípó og bulla í læknunum. Hún er búin til úr stáli og ekkert að spá í þessu," segir hann. Þó stúlkan sé úr lífshættu þá er ljóst að áverkarnir voru alvarlegir. „Það er 4-6 sm skurður á brjóstinu á henni og þetta hafi verið millimetrar þá hefði farið beint í dæluna, en það slapp. Hún rispaðist eitthvað í lifrinni en hún er öll að koma til. Það voru blæðingar inni í maganum en þeir segja að hún sé safe," segir Óskar. Í fjölmiðlum í dag var minnst á að Óskar væri stuðningsmaður Hells Angels. Óskar vill sem minnst um það segja og svarar: „Ég vil ekkert tjá mig um það. Ég er í mótorhjólaklúbbi. En það kemur þessi máli ekkert við."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira