Innlent

Jafnræðis ekki gætt með vörugjöldum

Ekki er ljóst hvers vegna sumar vörutegundir bera vörugjöld en aðrar ekki, segir framkvæmdastjóri FÍS.Fréttablaðið/valli
Ekki er ljóst hvers vegna sumar vörutegundir bera vörugjöld en aðrar ekki, segir framkvæmdastjóri FÍS.Fréttablaðið/valli

Upptaka vörugjalda á tilteknar vörur virðist handahófskennd, sem er ótækt í ljósi ákvæða stjórnarskrárinnar um jafnræði og eignarrétt, að mati Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS).

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍS, hefur sent fjármálaráðherra og fulltrúum í efnahags- og skattanefnd bréf fyrir hönd félagsins þar sem óskað er eftir því að nýleg upptaka vörugjalda á fjölmargar tegundir matvæla verði endur­skoðuð.

„Það er réttlætismál að skattlagning sé hafin yfir allan vafa," segir Almar. Hann segir það vekja spurningar þegar vörugjöld leggist á sojamjólk en ekki venjulega mjólk og þegar lakkrís beri vörugjöld en ekki súkkulaðihúðaður lakkrís, svo dæmi séu tekin.

Með nýlegri lagasetningu voru vörugjöld sem áður höfðu verið felld niður tekin upp að nýju, í þeim tilgangi að afla ríkinu tekna.

Almar segir mikið vanta upp á rökstuðning með nýlegri lagabreytingu sem mælir fyrir um vörugjöldin. Ekki sé ljóst hvers vegna sumar matvælategundir beri vörugjöld en aðrar ekki með nýju lögunum. Það sem upphaflega hafi átt að vera sykur­skattur hafi endað sem vörugjöld á ýmsar vörur.

Almar segir það benda til þess að í flýtinum við að stoppa í fjárlagagatið hafi vörugjöld sem áður voru í gildi, en höfðu verið afnumin, verið tekin upp aftur.

„Það eru hæpin rök fyrir þessum vörugjöldum að svona hafi þetta verið áður og þess vegna sé löggjafanum heimilt, án annarra röksemda, að setja þessi gjöld á aftur. Það er svipað og að svipta konur kosningarétti með þeim rökum að þetta hafi einu sinni verið þannig," segir Almar.

Hann segir FÍS leggja áherslu á að ríkið skeri frekar niður útgjöld en að skattar séu hækkaðir. Ef hreyfa eigi við skattkerfinu sé heppilegra að fara almennari leiðir, til dæmis með því að hækka virðisaukaskatt, eða matarskatt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×