Þorbjörn Jensson hlaut Barnamenningarverðlaunin 2009 1. desember 2009 14:00 Frá vinstri eru: Sæunn Kjartansdóttir, sem veitti viðtöku styrk til Miðstöðvar foreldra og barna til fimm ára aldurs, Ingibjörg Pálmadóttir, stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Þorbjörn Jensson, handhafi barnaverðlauna Velferðarsjóðs barna árið 2009, og Soffía Pálsdóttir, sem veitti viðtöku styrk til ÍTR vegna Sumargleði Velferðarsjóðs barna. MYND/Hreinn Magnússon.
Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, hlaut í dag Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla nýja uppbyggingu meðal annars tónlistardeild Fjölsmiðjunnar. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé í fimmta sinn sem Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna er úthlutað og afhenti Kári Stefánsson Þorbirni Jenssyni verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Um var að ræða verðlaunagrip úr silfri er nefnist Samleið eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og ávísun að upphæð 3,5 milljónir króna. „Fjölsmiðjan er vinnustaður þar sem ungt fólk fær þjálfun fyrir almennan vinnumarkað eða skóla. Frá því hún tók til starfa árið 2001 hafa um 400 nemendur stundað þar vinnu og hafa um 80% þeirra fundið sér farveg út í lífið að nýju, annað hvort í vinnu eða í skóla, sem telst afar góður árangur," segir ennfremur. Við sama tækifæri var úthlutað lokastyrk að upphæð 20 milljónir króna til Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar vegna verkefnisins Sumargleði velferðarsjóðs barna og veitti Soffía Pálsdóttir styrknum viðtöku fyrir hönd ÍTR, sem alls hefur fengið 40 milljóna króna styrk frá sjóðnum vegna þessa verkefnis. „Í heild hefur Velferðarsjóður barna lagt fram í gegnum þetta verkefni 82 milljónir króna til styrktar tómstundastarfi fyrir börn á Íslandi í sumar. Um 15 þúsund börn, alls staðar að af landinu, hafa notið góðs af því en markmiðið með verkefninu er að tryggja jafnan aðgang barna að sumarnámskeiðum. Þá er verkefninu einnig ætlað að tryggja nemendum í framhaldsskólum vinnu." Þá fékk Miðstöð foreldra og barna fram að fimm ára aldri ríflega 3ja milljóna króna styrk til að standa straum af kostnaði við meðferðarhópa mæðra og barna og veitti Sæunn Kjartansdóttir styrknum viðtöku. Miðstöðin vinnur með meðferðarúrræði sem nefnist foreldraefling (e. Mellow Parenting) fyrir mæður ungra barna (1-5 ára) sem eiga í erfiðleikum við að sinna foreldrahlutverkinu og/eða eiga við geðheilsuvanda að stríða. Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna árið 2000 og er frumkvöðull hér á landi hvað varðar slíkan styrktarsjóð að því er segir í tilkynningunni. Heildarupphæð styrkveitinga úr sjóðnum í ár nemur um 160 milljónum króna og hefur framlag sjóðsins aldrei verið hærra en úthlutað er úr sjóðnum 6-8 sinnum á ári.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira