Geir slíti stjórnarsamstarfinu frekar en að láta undan hótunum 20. desember 2008 19:24 Geir Haarde kynnti málefnastarf fyrir landsfundinn á blaðamannafundi í Valhöll.
Sjálfstæðismenn á Ísafirði hvetja Geir H. Haarde formann Sjálfstæðisflokksins til að bregðast við hótunum ráðherra samstarfsflokksins í ríkisstjórn og boða frekar til alþingiskosninga, en að láta undan dulbúnum hótunum, þar sem reynt er að hafa áhrif á væntanlegar ályktanir næsta landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í ályktun Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðabæ. Ísfirskir sjálfstæðismenn segjast styðja þá ákvörðun miðstjórnar flokksins að flýta landsfundi um hálft ár. Full þörf sé á að endurskoða stefnumál varðandi efnahagslífið, gjaldeyrismál og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, vegna gjörbreyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Fulltrúaráðið segist vera sammála því að Evrópumálin verði skoðuð sérstaklega með starfrækslu sérstakrar Evrópunefndar en leggi um leið þunga áherslu á að allir möguleikar í erlendu samstarfi verði skoðaðir, ekki einungis möguleg innganga í Evrópusambandið. Allir möguleikar í myntsamstarfi eða einhliða upptöku myntar verði einnig skoðaðir ofan í kjölinn. Fulltrúaráðið furðar sig á því að enginn landsbyggðarmaður sé í hópi 14 verkstjóra málefnaflokka Evrópunefndarinnar. Þá leggja sjálfstæðismenn á Ísafirði áherslu á að hagsmunir þjóðarinnar séu samofnir hagsmunum sjávarútvegarins og ráðstöfunarréttur þjóðarinnar yfir auðlindum sínum hljóti að ráða því hvort til álita komi að Ísland fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira