Björgvin: Ingibjörg ræður hvort ég verð áfram ráðherra 16. desember 2008 18:50
Viðskiptaráðherra sér enga ástæðu til að segja af sér en segir það í höndum formanns flokksins hvort hann sitji áfram á ráðherrastóli. Háværar raddir eru um að viðskiptaráðherra verði settur af. Björgvin G. Sigurðsson sagði í samtali við fréttastofu ekki vera kunnugt um að hann víki sem viðskiptaráðherra. Hann gefur ekki mikið fyrir heimildir sem segi að hann verði settur af. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í kvöldfréttum okkar í gær að hún útilokaði ekki ráðherrabreytingar áður en árið er á enda. Björgvin er ekki hræddur um sína stöðu. ,,Nei, nei ég er ekki hræddur við neitt," sagði Björgvin og bætti við að það sé formaðurinn sem taki ákvarðanir um breytingar á ráðherraliði flokksins. Björgvin vissi ekki um þjóðnýtingu Glitnir fyrr en nánast var búið að ganga frá samningnum, hann vissi ekki af uppsögnum innan Landsbankans og að kjör starfsmanna myndu skerðast fyrr en eftirá, Laun Kaupþingsforstjóra komu honum á óvart, hann vissi ekki af hlutbréfaeign Baldurs Guðlaugssonar, ráðuneytisstjóra í Fjármálaráðuneytinu í Landsbankanum, hann vissi ekki af persónulegum ábyrgðum stjórnenda Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum og hann hefur ekk hitt og fundað með Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra í ár. ,,Þú getur líka talið upp nokkur þúsund mál sem ég vissi af." Auðvelt sé að gera störf einhvers tortryggileg ef það er vilji fyrir því. Það er ekki siður að ráðherrar segi af sér á Íslandi. Benda þeir á að þeir hafi ekki gert neitt lagalega rangt, bankakerfið er hins vegar hrunið og er þá óeðlileg krafa um að yfirmaður bankamála segi af sér. ,,Menn segja ekki af sér bara til að segja af sér," sagði Björgvin.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira