Innlent

Strætó austur fyrir fjall

Bæjarstýrurnar Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, og Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri í Árborg skrifa undir samninginn ásamt Reyni Jónssyni framkvæmdastjóra Strætó.
Bæjarstýrurnar Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, og Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri í Árborg skrifa undir samninginn ásamt Reyni Jónssyni framkvæmdastjóra Strætó.

Fulltrúar Strætó bs. og bæjarstjórna Árborgar og Hveragerðis skrifuðu í morgun undir samninga um akstur Strætó milli bæjarfélaganna og höfuðborgarsvæðisins. Aksturinn hefst 2. janúar næstkomandi og verða farnar ellefu ferðir daglega fram og til baka á virkum dögum, sex á laugardögum og fimm á sunnudögum.

Í tilkynningu segir að markmiðið með akstrinum sé að tengja betur saman höfuðborgarsvæðið og nágrannasveitarfélögin og auðvelda íbúum að stunda vinnu, nám og sækja þjónustu milli sveitarfélaganna með sem hagkvæmustum hætti. Ferðum yfir Hellisheiði mun fjölga frá því sem hefur verið og fargjöld verða lægri, sér í lagi fyrir þá sem nýta sér þjónustuna reglulega.

Það voru Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem skrifuðu undir samninginn í strætisvagni sem heimsótti bæjarfélögin af þessu tilefni. Um leið var kynnt nýtt fargjaldafyrirkomulag sem tekið verður í notkun þegar aksturinn hefst. Það byggir á fjórum fargjaldasvæðum, þar sem svæði 1 er núverandi áætlanakerfi innan höfuðborgarsvæðisins, svæði 2 er kragi í kringum höfuðborgarsvæðið, Hveragerði er á svæði 3 og Selfoss á svæði 4.

Grunnfargjald í strætó verður áfram það sama, 280 krónur, en kostnaður við hverja ferð hækkar sem nemur einu grunnfargjaldi fyrir hvert gjaldsvæði sem keyrt er um. Afsláttarkort verða í boði sem gilda í allt frá tveimur vikum upp í níu mánuði, svipað og á höfuðborgarsvæðinu. Með notkun slíkra korta geta þeir sem ferðast fimm sinnum í viku fram og til baka milli gjaldsvæða 1 og 4 greitt allt niður í 323 krónur fyrir hverja ferð að jafnaði. Börn, ungmenni, aldraðir og öryrkjar fá jafnframt sérstakan afslátt. Hægt verður að kaupa miða og kort á skrifstofum sveitarfélaganna.

Upplýsingar um leiðakerfið og miðakaup verður að finna á www.straeto.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×