Strætó austur fyrir fjall 16. desember 2008 14:13 Bæjarstýrurnar Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, og Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri í Árborg skrifa undir samninginn ásamt Reyni Jónssyni framkvæmdastjóra Strætó.
Fulltrúar Strætó bs. og bæjarstjórna Árborgar og Hveragerðis skrifuðu í morgun undir samninga um akstur Strætó milli bæjarfélaganna og höfuðborgarsvæðisins. Aksturinn hefst 2. janúar næstkomandi og verða farnar ellefu ferðir daglega fram og til baka á virkum dögum, sex á laugardögum og fimm á sunnudögum. Í tilkynningu segir að markmiðið með akstrinum sé að tengja betur saman höfuðborgarsvæðið og nágrannasveitarfélögin og auðvelda íbúum að stunda vinnu, nám og sækja þjónustu milli sveitarfélaganna með sem hagkvæmustum hætti. Ferðum yfir Hellisheiði mun fjölga frá því sem hefur verið og fargjöld verða lægri, sér í lagi fyrir þá sem nýta sér þjónustuna reglulega. Það voru Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó, Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem skrifuðu undir samninginn í strætisvagni sem heimsótti bæjarfélögin af þessu tilefni. Um leið var kynnt nýtt fargjaldafyrirkomulag sem tekið verður í notkun þegar aksturinn hefst. Það byggir á fjórum fargjaldasvæðum, þar sem svæði 1 er núverandi áætlanakerfi innan höfuðborgarsvæðisins, svæði 2 er kragi í kringum höfuðborgarsvæðið, Hveragerði er á svæði 3 og Selfoss á svæði 4. Grunnfargjald í strætó verður áfram það sama, 280 krónur, en kostnaður við hverja ferð hækkar sem nemur einu grunnfargjaldi fyrir hvert gjaldsvæði sem keyrt er um. Afsláttarkort verða í boði sem gilda í allt frá tveimur vikum upp í níu mánuði, svipað og á höfuðborgarsvæðinu. Með notkun slíkra korta geta þeir sem ferðast fimm sinnum í viku fram og til baka milli gjaldsvæða 1 og 4 greitt allt niður í 323 krónur fyrir hverja ferð að jafnaði. Börn, ungmenni, aldraðir og öryrkjar fá jafnframt sérstakan afslátt. Hægt verður að kaupa miða og kort á skrifstofum sveitarfélaganna. Upplýsingar um leiðakerfið og miðakaup verður að finna á www.straeto.is.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira