Grímseyjarferjan kostaði 533 milljónir króna 2. maí 2008 14:22 Grímseyjarferjan Sæfari er byrjuð að flytja fólk til og frá eynni. MYND/Stöð 2
Endanlegur kostnaður við Grímseyjarferju reyndist 533 milljónir króna sem ríflega þreföld sú upphæð sem fyrsta kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferjunni Sæfara. Ferjan var nýverið tekin í gagnið og í skýrslunni er farið ítarlega yfir atvik málsins frá því í febrúar 2004 og fram í ágúst 2007 þegar Grímseyjarferjumálið var í hámæli. Meginmarkmið náðust Samkvæmt helstu niðurstöðum skýrsluhöfunda náðust meginmarkmiðin, það er að Sæfari uppfyllir allar kröfur um þær siglingar sem skipinu er ætlað. Aðstaða farþega hafi verið stórbætt, siglingartíminn hafi styst umtalsvert og kostnaðurinn hafi verið mun minni en við nýsmíði þótt hann sé ekki sá sem stefnt hafi verið að í uppharfi. Bent er á að ný ferja hefði kostað um 700 milljónir ef ákveðið hefði verið að ráðast í hana vorið 2006. Bent er á að ýmislegt hefði mátt betur fara, til dæmis hefði verið betra að skipa strax í upphafi verkefnishóp til að fylgjast með verkinu. Skoða hefði átt skipið, Oileain Arann, betur áður en gengið var frá kaupum og hönnungargöng hefðu í upphafi þurft að vera nákvæmari og betri. Þá hefði átt að gera meiri kröfur til verktaka. Fyrsta kostnaðaráætlun vegna skipsins hljóðaði upp á 150 milljónir króna en þá var ekki gert ráð fyrir neinum meiri háttar breytingum á skipinu og miðað við viðgerð í Austur-Evrópu. Hins vegar hafi áætlunin hækkað um 220-225 milljóir króna eftir að óskir komu frá Grímseyingum og áhöfn um endurbætur og breytingar. Segir í skýrslunni að ljóst sé að gera þurfi verklagsreglu um gerð kostnaðaráætlana og tryggja að gert sé áhættumat og óvissumat. Þá þurfi upplýsingagjöf til samgönguráðuneytis að vera formlegri. Vegamálastjóri ber ábyrgð hafi fjárreiðulög verið brotin Skipið var keypt á 103,2 milljónir króna í apríl 2004 en stærstur hluti viðbótarkostnaðar er verkkaup, eða tæpar 284 milljónir króna. Í skýrslunni segir enn fremur að gert hafi verið ráð fyrir fjármagni til endurnýjunar á Grímseyjarferju í samgönguáætlunum en það var lítt sýnilegt. Það hafi verið á ábyrgð vegamálastjóra hafi fjárreiðulög verið brotin með því að nýta ónýttar fjárheimildir en ljóst sé að þau lög séu ósveigjanleg og taki lítt mið af hraða í ákvörðunum og framkvæmdum í nútímaþjóðélagi. Verkframkvæmd fór úr böndunum Um verkframkvæmdina segir í skýrslunni að útboðsgögnum vegna endurbóta og breytinga hafi verið breytt á útboðstíma og slakað á gæðakröfum til verktaka. „Það er óheppilegt," segir Vegagerðin. Einnig hafi í upphafi verið fjallað of óskipulega um breytingar og viðbætur. „Óskir Grímseyinga um breytingar og viðbótarverk á síðari stigum komu gjarnan beint til verktaka frá samgönguráðuneyti. Framganga aðalverktakans var með öllu óviðunandi og í hefðbundnu verki fyrir Vegagerðina hefði verksamningi verið rift en samkvæmt upphaflegri áætlun átti verkinu að vera lokið 30. september 2006. Endurskoðaðar áætlanir um verklok 1. mars 2007, 29. maí 2007 og 28. október 2007 stóðust ekki. Skipið var afhent 11. apríl 2008. Vegna tafa og erfiðra samskipta við aðalverktaka verksins hefur allur eftirlits- og lögfræðikostnaður orðið mun meiri en eðlilegt getur talist. Með verkefnishópi skipuðum í upphafi verks hefði líklega mátt koma í veg fyrir þetta og þá með því að grípa til ákveðnari aðgerða þegar verkframkvæmd fór úr böndunum."
Mest lesið Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Sjá meira