Innlent

Annasöm heimsókn hjá Friðrik og Maríu í næstu viku

MYND/AP

Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans María Elísabet krónprinsessa koma í heimsókn til Íslands á mánudag og stendur heimsókn þeirra yfir fram á fimmtudag. Hjónin koma hingað í boði forsetahjónanna Ólafs Ragnars Grímssonar og Dorrit Moussaieff.

Meðal þess sem krónprinsparið gerir í heimsókn sinni er að heimsækja grunnskóla, Stofnun Árna Magnússonar og Öskju, hús náttúruvísinda Háskóla Íslands. Þá fara þau í reiðtúr á íslenskum hestum og heimsækja Þingvelli og snæða þar hádegisverð með forsætisráðherra og eiginkonu hans.

Þá verður Stykkishólmur heimsóttur og sömuleiðis danska herskipið Vædderen sem liggja mun í Reykjavíkurhöfn. Heimsókinni lýkur svo með heimsókn í Íslenska erfðagreiningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×