Réttarkerfið taki fast á árásum á lögreglumenn 20. október 2008 11:45 Stefán Vagn Stefánsson.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir lögreglu þar á bæ líta árás á lögreglumann í umdæminu aðfaranótt sunnudags mjög alvarlegum augum og vonast til þess að réttarkerfið taki fast á málinu. Karlmaður réðst á lögregluþjón í lögreglubíl og beit í fingur hans þannig að litlu mátti muna að fingurinn færi í sundur. Hafði lögregla afskipti af manninum eftir að hann hafði orðið uppvís að alvarlegri líkamsárás fyrir utan skemmtistað á Sauðárkróki þar sem fórnarlambið lá meðvitundarlaust eftir. Stefán Vagn segir að lögreglumaðurinn sem varð fyrir árásinni hafi það þokkalegt en hann hafi hlotið mjög slæmt sár á fingri. „Það munaði mjög litlu að hann missti fingurinn en það bjargaði honum að hann var í þykkum hönskum. En beinið í fingrinum brotnaði," segir Stefán um bitið. Aðspurður segir Stefán að lögregla hafi áður haft afskipti af umræddum manni. Hann var ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald heldur látinn gista fangageymslur í fyrrinótt og sleppt eftir yfirheyrslur. Búast má við að hann verði ákærður bæði fyrir líkamsárásina fyrir utan skemmtistaðinn og fyrir brot gegn valdstjórninni vegna árásarinnar á lögreglumanninn. Um árásina á lögreglumanninn segir Stefán. „Þetta er eitthvað sem við getum ekki látið viðgangast en því miður getur þetta gerst. Við verðum að taka alvarlega á þessum málum og ég vona að réttarkerfið taki fast þessu."
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent