Innlent

Ístak byrjar á lokaframkvæmdum á Reykjanesbraut eftir helgi

MYND/Vilhelm

Ístak mun ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar á kafla frá Strandarheiði til Njarðvíkur fyrir 807 milljónir króna samkvæmt samningi sem undirritaður var í dag.

Vegagerðin hafði áður hafnað tilboði Adakris/Toppverktaka í verkið þar sem verktakinn stóðst ekki þær kröfur sem Vegagerðin gerir. Undirverktaki Ístaks vegna malbikunar verður Hlaðbær - Colas malbikunarstöð og eftirlit verður í höndum Mannvits hf.

Forsvarsmenn Ístaks bíða ekki boðanna heldur hefjast handa strax á mánudag. Áætlað er að þann 16. október verði unnt að aka útboðskaflann á fjórum akreinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×