Ráðherra kynnti aðgerðir vegna aukins atvinnuleysis og gjaldþrota heimila 23. október 2008 11:21 Jóhanna Sigurðardóttir flutti ræðu á ársfundi ASÍ í morgun.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra leggur áherslu á að atvinnurekendur lækki starfshlutfall starfsmanna sinna í stað þess að grípa til uppsagna. Þetta kom fram í ræðu hennar á ársfundur ASÍ í morgun.Atvinnuleysisbætur skerðist ekki þrátt fyrir hlutastörf Jóhanna segir að samráðsnefnd félags- og tryggingamálaráðuneytisins og aðilar vinnumarkaðarins hafi mótað tillögur sem feli meðal annars í sér að bæta launafólki betur en áður þá launaskerðingu sem það kann að verða fyrir þegar atvinnurekandi óskar eftir breytingum á ráðningakjörum í formi lægra starfshlutfalls. Tillögurnar felist meðal annars í því að tímabilið sem tekjutengdar atvinnuleysisbætur séu greiddar fyrir geti lengst hlutfallslega þegar launafólk sækir um atvinnuleysisibætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Jafnframt feli þessar tillögur í sér að þær tekjur sem launamaður heldur fyrir hlutastarf sitt komi ekki til með að skerða atvinnuleysisbæturnar eins og verið hefur. Jóhanna segir að tillögurnar geti haft þau áhrif að starfsmaður í fullu starfi geti minnkað starfshlutfall sitt um allt að 50% vegna samdráttar í fyrirtæki sem hann vinnur hjá og þegið í allt að sex mánuði 50% tekjutengdar atvinnuleysisbætur að hámarki um 110 þúsund krónur án þess að laun hans komi til skerðingar þeirrar fjárhæðar.Fólki verði ekki mismunað á atvinnumarkaðiJóhanna segir mikilvægt að tryggja að þær aðstæður sem nú séu uppi leiði ekki til mismununar á vinnumarkaði og að slegin verði skjaldborg utan um þá sem höllustum fæti standa á vinnumarkaðnum og atvinnuleysi geti bitnað harðast á. Þetta eigi til dæmis við um eldra fólk, starfsmenn með skerta starfsgetu og erlenda starfsmenn.Fólk fái að leigja heimili sem það missir vegna vanskila„Í húsnæðismálum hafa þegar verið kynntar margvíslegar aðgerðir, bæði fyrir fólk sem komið er í vanskila- eða nauðungarsöluferli og ýmsar forvarnaraðgerðir fyrir þá sem eru lentir í greiðsluerfiðleikum. Þar skiptir miklu máli frysting innlendra og erlendra lána og niðurfelling stimpilgjalda af skuldbreytingarlánum. Áfram vinnum við síðan að frekari lausnum til að vernda betur fjölskyldur landsins," sagði Jóhanna. Jóhanna sagðist hafa skipað sérfræðihóp til að fara yfir verðtryggð lán. Þegar hafi verið heimilað að einungis verði greiddir vextir og verðbætur af vöxtum en ekki höfuðstól í tiltekinn tíma. Það geti auðveldað mönnum að komast í gegnum erfiða tíma, þó ekki dragi það úr vexti lánsins til langframa. „Þá er hópur á mínum vegum að kanna hvort mögulegt verði, í samráði við sveitarfélög, að leigja fólki íbúðir sem það kann að missa vegna atvinnuleysis og of hárrar greiðslubyrði. Markmiðið er að koma í veg fyrir að fjölskyldur sem verða fyrir fjárhagslegu áfalli þurfi að yfirgefa heimili sín ef þess er nokkur kostur," sagði Jóhanna.Ekki liðið ef stjórnendur bankanna óhlýðnast fyrirmælum stjórnvalda Loks sagði Jóhanna að það yrði ekki liðið að stjórnendur ríkisbankanna þriggja hunsi fyrirmæli ríkisstjórnarinnar um að frysta erlend lán hjá þeim sem eigi í greiðsluerfiðleikum. Viðskiptaráðherra hafi nú þegar áréttað mikilvægi þessa gagnvart stjórnum og stjórnendum bankanna.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira