Rannsókn á rekstri Eimskipafélagsins 14. september 2008 17:58
Hafin er rannsókn á ýmsum þáttum sem tengjast rekstri Eimskipafélags Íslands undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu sem var send út rétt í þessu vegna umfjöllunar um fyrirtækið undanfarið. Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóri Eimskips, hefur stefnt fyrirtækinu fyrir að virða ekki starfslokasamning við hann. Eimskip stöðvaði allar greiðslur til Baldurs í maí skömmu eftir að hann lét af störfum. Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og formaður Félags fjárfesta, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag telja frekari málaferli vera yfirvofandi í tengslum við Eimskipafélagið og Baldur. Yfirlýsing Eimskipafélags Íslands í heild sinni: Vegna umfjöllunar um málefni Hf. Eimskipafélags Íslands að undanförnu vill stjórn félagsins koma eftirfarandi á framfæri. Nú þegar er á vegum stjórnar rannsókn á tiltekum atriðum sem tengjast rekstri félagsins frá fyrri tíð. Fyrr en niðurstaða liggur fyrir mun félagið ekki fjalla um þau atriði með opinberum hætti. Það er rétt sem fram hefur komið að fyrrverandi forstjóri hefur höfðað mál á hendur félaginu vegna krafna hans um starfslokagreiðslur. Félagið stöðvaði allar greiðslur til fyrrum forstjóra í maí sl. Á meðan málefnið er til umfjöllunar hjá dómstólum mun félagið ekki tjá sig um það. Reykjavík, 14. september 2008
Tengdar fréttir Telur frekari málaferli hjá Eimskip líkleg Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og formaður Félags fjárfesta, telur frekari málaferli vera yfirvofandi í tengslum við Eimskipafélagið og Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. 14. september 2008 14:11 Fyrrverandi forstjóri stefnir Eimskip Baldur Guðnason fyrrverandi forstjóri Eimskipafélagsins hefur stefnt fyrirtækinu fyrir að virða ekki starfslokasamning við hann. Baldur segir Eimskip skulda sér laun í 22 mánuði eða ríflega 140 milljónir. Fyrirtækið stöðvaði allar greiðslur til hans í maí. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 13. september 2008 20:00 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira
Telur frekari málaferli hjá Eimskip líkleg Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og formaður Félags fjárfesta, telur frekari málaferli vera yfirvofandi í tengslum við Eimskipafélagið og Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. 14. september 2008 14:11
Fyrrverandi forstjóri stefnir Eimskip Baldur Guðnason fyrrverandi forstjóri Eimskipafélagsins hefur stefnt fyrirtækinu fyrir að virða ekki starfslokasamning við hann. Baldur segir Eimskip skulda sér laun í 22 mánuði eða ríflega 140 milljónir. Fyrirtækið stöðvaði allar greiðslur til hans í maí. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 13. september 2008 20:00