Innlent

Vilja fækka bæjarfulltrúum í Árborg

Eyþór Arnalds.
Eyþór Arnalds.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Árborg lögðu til í bæjarstjórn í gær að bæjarfulltrúum yrði fækkað úr níu í sjö. Slíkt er heimilt samkvæmt lögum. Einnig lögðu þeir til að bæjarstjóri þiggi ekki laun sem bæði bæjarstjóri og bæjarfulltrúi.

„Þarna er mikilvægt skref stigið. Þetta er í fyrsta skipti að mér vitandi sem það kemur fram tillaga um að fækka kjörnum fulltrúum í stjórnsýslunni. Það eðlilegt að við, sem höfum verið valin til starfa í kosningum, göngum í takt við atvinnulífið og hagræðum svo að ekki falli aukinn kostnaður á borgarana," segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, í tilkynningu.

Á bæjarstjórnarfundinum í gær var ákveðið að fresta afgreiðslu málsins til 14. janúar, en Eyþór segist vongóður um að tillögur flokksins nái fram að ganga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×