Spyr hvort borgin gangi til góðs Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. júní 2008 12:20 Birna Þórðardóttir. „
Auðvitað eru göturnar öllum frjálsar, ég hef löngum sagt það. En ef einu fyrirtæki er gert að starfa á ákveðinn máta á það að gilda fyrir alla," segir Birna Þórðardóttir sem rekur Menningarfylgd Birnu og hefur fylgt hópum um götur Reykjavíkur í sex ár í menningartengdum gönguferðum. Umræðuefnið er Kvöldgöngur úr Kvosinni, gönguferðir sem ýmsar af menningarstofnunum Reykjavíkurborgar standa fyrir á fimmtudagskvöldum í sumar og eru þátttakendum að kostnaðarlausu. „Eins og við vitum er ekkert ókeypis og því spyr ég hvort þetta séu starfsmenn á vegum þessara opinberu stofnana eða hvort þær kaupi þjónustu annars staða frá sem hlýtur þá að vera niðurgreidd af annarri starfsemi stofnananna til að stunda þetta," segir Birna enn fremur. Hún segir sína starfsemi leyfisskylda enda þurfi hún leyfi sem ferðaskipuleggjandi til að reka fyrirtæki sitt. Ekki kannist hún við að þær stofnanir borgarinnar sem að göngunum standa hafi slíkt leyfi eða að fjárhagur þeirra sé sundurgreindur með þessa starfsemi í huga. Birna spyr því hvort verið sé að greiða niður samkeppnisstarfsemi. Eðlilegur hluti starfseminnar Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, segir það alrangt að þær stofnanir sem standa að Kvöldgöngum úr Kvosinni þurfi leyfi ferðaskipuleggjanda til að halda úti göngunum. „Við lítum svo á að þetta sé hluti af starfsemi stofnananna en þeirra hlutverk er meðal annars að miðla og fræða um menningu og sögu borgarinnar og þessar göngur snúa allar að því," segir Svanhildur. Hún segir göngurnar ekki frábrugðnar því er starfsmenn Listasafns Reykjavíkur veiti leiðsögn um listmuni þar eða útilistaverk borgarinnar. „Þetta eru ekki ferðaskipuleggjendur í þeim skilningi, það er óralangur vegur frá því. Þarna er ekki verið að skipuleggja neina tilflutninga fólks heldur gengur það bara á milli. Eina ferðalagið yfir einhvern lengri veg eru siglingarnar um Sundin og um þær er séð af fagaðilum sem hafa sín leyfi. Það er eina atriðið sem er rukkað fyrir í þessum göngum og þar greiða menn bara ferjutollinn," segir Svanhildur og bætir því við að enginn eðlismunur sé á þessari miðlun og því sem þessar menningarstofnanir sinni á hverjum einasta degi innan eða utan sinna veggja.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira