Innlent

Breskum ferðamönnum fjölgar í kreppunni

Fimmtungi fleiri fleiri Bretar komu til Íslands í september og á fyrri hluta októbermánaðar í ár en á sama tíma í fyrra samkvæmt frétt á breska ferðafréttavefnum Travel Weekly.

Alls komu um 8.750 manns frá Bretlandi frá 1. september til 13. október í ár en á sama tímabili í fyrra reyndust þeir rúmlega 7.300. Þá komu alls um 58 þúsund ferðamenn til landsins á þessum tíma í ár sem er aukning um 15 prósent á milli ára.

Haft er eftir Sigrún Hlín Sigurðardóttur hjá Ferðamálastofu að fólk þar á bæ sé hæstánægt með þessa auknu aðsókn utan hefðbundins ferðamannatíma. Staða gjaldeyrismála geri það að verkum að það hafi aldrei verið betra að heimsækja landið og að breskir ferðamenn eyði nú meira fé á landinu vegna veikrar stöðu krónunnar.

,,Við vonumst til þess að fjöldi ferðmanna aukist einnig í vetur og að ferðamenn kíki á Norðurljósin, Bláa lónið og geri sín innkaup fyrir jólin hér," segir Sigrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×