Vara við könnunum sem sýna Obama með forskot Óli Tynes skrifar 27. október 2008 18:57
Sérfræðingar í Bandaríkjunum vara við því að of mikið mark sé tekið á tölum um það forskot sem Barack Obama hefur á John McCain í forsetakosningunum. Samkvæmt skoðanakönnunum er Barack Obama með tíu og jafnvel tólf prósenta forskot á John McCain. Ýmsir sérfræðingar vilja þó taka þeim tölum með fyrirvara. Reuters fréttastofan fékk Zogby rannsóknarstofnunina til þess að gera fyrir sig sérskrifaða könnun. Samkvæmt henni var forskot Obamas fimm prósent eða minna. Það sem menn líta ekki síst til eru Bradley-áhrifin svokölluðu. Þar er vísað til Toms Bradley borgarstjóra í Los Angeles. Árið 1985 bauð hann sig fram í embætti ríkisstjóra í Kaliforníu. Í skoðanakönnunum var honum spáð hreinum sigri, en niðurstaðan varð sú að hann tapaði. Menn velta því nú fyrir sér hvort Obama hljóti sömu örlög. Að í skoðanakönnunum segist menn styðja svarta frambjóðandann af því að þeir vilji ekki láta líta á sig sem kynþáttahatara. Í kjörklefanum eru þeir hinsvegar einir með sínar skoðanir og þá kjósi þeir hvíta manninn. Mikið er deilt um hvort þetta sé alvarlegur möguleiki. Bæði Obama og McCain hafa lagt áherslu á að kosningarnar snúist ekki um kynþætti.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira