Innlent

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfu um síbrotagæslu

Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á við Héraðsdóm Suðurlands að dæma mann í síbrotagæslu vegna tíðra afbrota. Dómurinn hafnaði þeirri beiðni í gær. Fyrir nokkru stöðvaði lögreglan mann grunaðan um að aka undir áhrifum fíkniefna. Í kjölfarið var gerð húsleit á heimili mannsins þar sem fundust um 30 grömm af fíkniefnum. Seinna fannst einnig lítilræði af fíkniefnum við aðra húsleit á heimili annars manns í bænum.

Samkvæmt heimildum Vísis fór lögreglan fram á að annar þessara manna yrði dæmdur í síbrotagæslu þar til unnt verði að vinna úr málum hans en hann hefur brotið ítrekað af sér að undanförnu. Þessu hafnaði dómurinn eins og áður segir en lögreglan mun að öllum líkindum kæra þann úrskurð til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×