Innlent

Íslenska meðlagskerfið endurskoðað

MYND/Anton

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra um endurskoðun íslenska meðlagskerfisins.

Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að að gerður hafi verið samanburður á íslenskum reglum um meðlag og sambærilegum úrræðum í mörgum öðrum ríkjum. Þar kemur meðal annars fram að íslenska kerfið hafi undanfarna áratugi þróast og breyst mun hægar en flest önnur.

Nefnd verður falið að fara yfir reglur barnalaga um framfærslu barna með það fyrir augum að kanna hvort núverandi fyrirkomulag þjóni hagsmunum barna og foreldra með sanngjörnum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×