Plank verður framseldur Andri Ólafsson skrifar 29. apríl 2008 15:33 Premyzlaw Plank í Kastljósi Sjónvarpsins
Dómsmálaráðuneytið hefur fallist á kröfu pólskra yfirvalda um að Premyzlaw Plank verði framseldur til Póllands. Þetta kom fram í fréttum Útvarpsins í dag. Það er því ekki rétt að ákvörðunnar sé að vænta í málinu eins og Vísir greindi frá fyrr í dag. Plank, sem er pólskur ríkisborgari, er grunaður um morð í heimalandi sínu. Hann hefur verið búsettur hér á landi undanfarið og komist í kast við lögin nokkrum sinnum. Plank var úrskurðaður í gæsluvarðhald á meðan ráðuneytið fjallaði kröfu yfirvalda í Póllandi. Eins og reglur kveða á um sendi dómsmálaráðuneytið beiðni pólskra yfirvalda um framsal til umsagnar Ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur kannað lögmæti kröfunnar og sent umsögn sína aftur í ráðuneytið sem síðan tók ákvörðun um að fallast á kröfuna. Plank getur mótmælt ákvörðun ráðuneytisins. Héraðsdómur mun þá fjalla um málið og úrskurða um lögmæti hennar. Ef Plank mótmælir ekki verða pólskir lögreglumenn sendir til Íslands til þess að fylgja Plank til Póllands. Athugasemd ritstjóra Vísis: Þórir Hrafnsson, aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra svaraði fyrirspurn Vísis frá því í morgun um framsal Premyzlaw Plank til Póllands kl. 15.12 í dag. Þar kom fram að ákvörðunar væri að vænta í vikulok. Á því byggði Vísir frétt sína sem birtist kl. 15.33. Nú hefur RÚV flutt fréttir af því að framsal Planks hafi verið samþykkt af ráðherra. Um leið og RÚV er óskað til hamingju með fréttina þá harmar ritstjórn Vísis að ekki skuli vera hægt að treysta aðstoðarmanni ráðherra til að segja sannleikann. Önnur athugasemd ritstjóra Of sterkt var til orða tekið í fyrri athugasemd ritstjóra þar sem sagt var að ekki væri hægt að treysta aðstoðarmanni ráðherra til að segja sannleikann. Réttara er að segja að ekki sé hægt að treysta á að hann geti sagt allan sannleikann. Er Þórir beðinn velvirðingar.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Sjá meira