Seinir að sækja um hjá Lögregluskólanum 29. apríl 2008 10:35 Frá æfingu lögeglunema. MYND/Lögregluskóli ríkisins
Frestur til að sækja um í Lögregluskóla ríkisins fyrir næsta vetur rennur út 1. maí en hann var framlengdur á dögunum. Forsvarsmenn þar segja það ekki vegna skorts á umsóknum heldur hafi skapast hefð fyrir því. Búist er við allt að 50 nemendum á næsta vetri. Athygli vakti að Lögregluskóli ríkisins auglýsti um helgina að umsóknarfrestur fyrir nám í skólanum yrði framlengdur til 1. maí en hann var áður 26. apríl. Að sögn Arnars Guðmundssonarskólastjóra hafa menn gefið sér tíma í að afla umsókna og oftar en ekki framlengt umsóknarfrestinn. Það sé vel þekkt að Íslendingar séu oft á síðustu stundu með hluti. Að sögn Arnars er ætlunin að taka inn einn nýliðabekk í haust, um sextán manns, en auk hans verða tveir bekkir í seinni hluta náms síns eftir starfsnám hjá lögreglunni. Hugmyndin sé svo að taka inn tvo nýja bekki eftir áramót og því sé um allt að 48 nemendur að ræða á næsta ári. Flestar umsóknir á síðustu dögunum Sérstök valnefnd sér um að velja inn í skólann og fyrir henni fer Gunnlaugur V. Snævarr. Hann segir einnig að Lögregluskólinn hafi oft framlengt umsóknarfrestinn enda hafi það sýnt sig að flestar umsóknir berist á síðustu dögunum. Hann á því von á nokkrum fjölda umsókna í dag og á morgun. „Menn geta líka skilað inn umsóknum á fimmtudag og sent í pósti fyrir þann tíma en menn hafa undanfarin ár jafnvel komið að næturlagi og skilað inn umsóknum í bréfalúguna á síðustu stundu," segir Gunnlaugur. Hann segist þegar kominn með nokkra tugi umsókna. Aðspurður hvort mikill skortur sé á lögreglumönnum segir Gunnlaugur að staðan sé þokkaleg. Það sé svolítið óljóst hversu margir verði teknir inn í skólann eftir áramót en þá verði tekið mið af þörfinni. „Þegar kreppir að koma oft gömlu mennirnir til baka," segir Gunnlaugur.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Sjá meira