Innlent

Ingibjörg um Baugsmálið: Umfang rannsóknar ekki í samræmi við tilefnið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna málalykta Baugsmálsins í Hæstarétti í gær. Í henni segir hún að umfang rannsóknar málsins og ákæranna sem gefnar voru út upphaflega hafi ekki verið í samræmi við tilefnið.

Í yfirlýsingu sinni segir Ingibjörg:

„Víðfeðmasta opinbera rannsókn síðari ára sem hófst í tilefni af tilteknum kreditreikningi, hefur nú verið til lykta leidd í Hæstarétti Íslands eftir sex ára meðferð í réttarkerfinu sem kostað hefur ógrynni fjár.

Hæstiréttur veitti öllum sem komu að útgáfu þessa tiltekna reiknings sýnilega jafna og réttláta málsmeðferð. Bersýnilegt er að dómstólar kveða upp úr um að umfang rannsóknarinnar og ákæranna sem gefnar voru út upphaflega var alls ekki í samræmi við tilefnið.

Óhjákvæmilega hljóta íslensk stjórnvöld að draga lærdóma af þessari útkomu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×