Innlent

Benedikt starfandi stjórnarformaður

Benedikt Jóhannesson.
Benedikt Jóhannesson.

Ákveðið hefur verið að Benedikt Jóhannesson, formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar sem tekur til starfa í haust, verði starfandi stjórnarformaður stofnunarinnar uns forstjóri hefur verið skipaður.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneyti kemur fram að það komi í hlut starfandi stjórnarformanns að undirbúa starfsemi nýju stofnunarinnar og taka nauðsynlegar ákvarðanir í samráði við heilbrigðisráðherra og stjórn stofnunarinnar. „Lögð er áhersla á mikilvægi samráðs við Tryggingarstofnun ríkisins við undirbúninginn, en hún annast nú afgreiðslu sjúkratrygginga í umboði heilbrigðisráðherra."

Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra sjúkratryggingastofnunar var lengdur til 15. september 2008 þegar ljóst var að frumvarp til laga um sjúkratryggingar hlyti ekki endanlega umfjöllun fyrr en í september.

„Ítrekað skal í þessu sambandi að umsóknarfrestur um starf forstjóra hinnar nýju stofnunar er til og með 15. september nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is og senda jafnframt greinagóðar upplýsingar um menntun og fyrri störf," segir ennfremur.

Skipað verður í stöðuna til fimm ára í senn. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Þá kemur fram að öllum umsóknum verði svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×