Innlent

Móðir öryggisvarðar ósátt við vægan dóm árásamanns

Óttarr Ómarsson
Óttarr Ómarsson Mynd/Stöð2

Fjölskylda Óttarrs Ómarssonar sem varð fyrir lífshættulegri árás í 10-11 í Austurstræti í apríl er mjög ósátt við dóminn sem árásamaður hans hlaut. „Okkur finnst rugl að hann þurfi aðeins að sitja inn í einn og hálfan mánuð. Þar að auki finnst okkur ekki tímabært að meta strax hve mikil áhrif þessi árás mun hafa á Óttarr," segir Hrefna Snæhólm móðir Óttarrs.

Óttarr hlaut lífshættulega áverka. Hann höfuðkúpubrotnaði auk þess sem slagæð í heilahimnu fór í sundur. Óttarr hefur verið frá vinnu síðan hann varð fyrir árásinni og enn er ekki ljóst hvort hann nær sér að fullu.

Hrefna segir að miðað við hversu alvarlega áverka sonur hennar hlaut sé dómurinn alltof vægur.

„Ég er ekkert að segja það að árásamaðurinn verði betri maður eftir lengri fangelsisvist en þetta er samt sem engin refsing fyrir svona brot, árásamaðurinn sat fyrir honum fyrir utan verslunina og sló son minn í höfuðið með flösku."

Hrefna segir Óttarr ekki hafa verið saman eftir árásina og hefur hann ekkert getað unnið síðan. Hann fékk þriggja  mánaða veikindaorlof frá vinnuveitanda sínum en síðan hefur hann engar bætur fengið. Móðir hans er afar ósátt við  það.

„Hann hefur enga borgun fengið, allir sem við leitum til benda hver  á annan. Hann þarf að taka sérstakt lán til þess að lifa," segir Hrefna.

Þar sem þetta var líkamsárás þá fær hann ekki úr sjúkrasjóði Eflingar en Óttarr er meðlimur í því stéttarfélagi. Efling bendir á tryggingafélag geranda sem svo aftur bendir á Eflingu.

„Það er alls staðar lokað á okkur þegar við erum að sækja um bætur fyrir hann á meðan hann er óvinnufær. Þetta tekur allt sinn tíma og á meðan þarf drengurinn náttúrulega að hafa einhvern pening. Við erum ekki fær um að lána honum endalaust," segir Hrefna.












Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×