Lækurinn sem varð að fljóti 14. maí 2008 15:38
Kristján Steinarsson, vöruflutningabílstjóri hjá Flytjanda komst í hann krappan í gær þegar hringveginum skolaði bókstaflega burt á 200 metra kafla. Kristján var á leið frá Reyðarfirði til Akureyrar og var staddur nálægt bænum Grímsstöðum á fjöllum í svarta þoku þegar hann tók eftir því að lækur hafði myndast meðfram veginum. „Ég var nýbúinn að tala við annan bílstjóra og segja honum að það mætti ekki rigna mikið því þá væri vegurinn í hættu," segir Kristján í samtali við Vísi. Hann segir að sem betur fer hafi þokunni létt lítið eitt og þá hafi hann séð traktorsgröfu við vegarkantinn sem var að reyna að losa klakahröngl frá ræsi við veginn. „Þá sá ég að það var farið að flæða upp á veginn og ég ákvað að stoppa. Það var eins gott því þegar ég reyndi að bakka þá skildi tengivagninn eftir gat í veginum sem ég komst ekki yfir." Kristján segist þá hafa farið út úr bílnum og séð að svelgur hafi myndast aftan við bílinn. Maðurinn á traktorsgröfunni reyndi að mynda undankomuleið fyrir bílinn, sem er flutningabíll með tengivagni, en í þann mund gaf vegurinn sig og bíllinn sökk niður á stuðara. Eins og sjá skolaði veginum burt á löngum kafla.„Þá fór ég út úr honum aftur og gat lítið gert annað en að horfa á hann velta á hliðina. Stuttu seinna fór vegurinn í sundur fyrir framan bílinn og síðan fyrir aftan og eftir stutta stund var heljarinnar fljót komið þar sem vegurinn hafði verið," segir Kristján sem er frá Akureyri. Hann segir óljóst um ástand bílsins en gerir ekki ráð fyrir að hann verði ökufær á næstunni.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira