Innlent

Harma að framkvæmdastjóri þjóðgarðs verði í Reykjavík

Hjalti Þór Vignisson er bæjarstjóri Hornafjarðar.
Hjalti Þór Vignisson er bæjarstjóri Hornafjarðar. MYND/Klemens

Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að nýráðinn framkvæmdastjóri yfirstjórnarinnar verði með starfstöð í Reykjavík.

Fram kemur í bókun vegna málsins að innan yfirstjórnarinnar hafi ekki reynst pólitískur vilji fyrir því að starfsstöð framkvæmdastjórans yrði á Hornafirði eins og bæjarstjórn Hornafjarðar hefði barist fyrir síðan umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hófst.

Þá undrast bæjarstjórn að fyrsta starfið sem auglýst er án staðsetningar ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skuli enda á höfuðborgarsvæðinu. Það vinni gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um eflingu atvinnulífs á landsbyggðinni í gegnum störf án staðsetningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×