Stjórnin einróma um ráðningu Þorsteins 4. nóvember 2008 11:58 Hjörleifur B. Kvaran.
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar og starfandi forstjóri REI, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Stöðvar 2 í gær þar sem sagt var frá ráðgjafarstörfum Þorsteins Siglaugssonar fyrir REI. Hjörleifur bendir á að Þorsteinn hafi verið ráðinn af stjórn REI og að laun hans hafi verið í fullu samræmi við „það sem tíðkast á ráðgjafamarkaði." „Í fréttatíma Stöðvar 2, 3. nóvember sl., var reynt að gera störf ráðgjafa sem unnið hefur í þágu Reykjavík Energy Invest (REI) tortryggileg og gefið í skyn að ráðning hans hafi ekki verið á faglegum forsendum," segir Hjörleifur. „Af þessu tilefni er rétt að taka fram að stjórn REI samþykkti einróma 4. apríl sl. að ráða umræddan ráðgjafa til starfa. Meginhlutverk hans hefur verið að halda utan um stefnumótunarvinnu stjórnar REI með það að markmiði að ná sameiginlegri niðurstöðu allra flokka í borgarstjórn í einu mesta pólitíska deilumáli síðari ára." Þá segir að ráðgafinn hafi unnið verkið í umboði stjórnar fyrirtækisins og í samstarfi við fjölmarga aðila, meðal annars starfsmenn REI, ýmsa sérfræðinga og borgarfulltrúa úr öllum flokkum. „Þessi vinna hefur skilað þeim árangri að samstaða og sátt hefur náðst innan stjórnar REI og Orkuveitu Reykjavíkur um nýjan starfsgrundvöll útrásarverkefna. Sú stefna felur í sér að dregið verði sem kostur er úr áhættu af erlendum verkefnum með því að fá að þeim utanaðkomandi fjárfesta," segir einnig og því bætt við að við úrlausn sértækra verkefna leiti Orkuveita Reykjavíkur og REI á tíðum til utanaðkomandi sérfræðinga, svo sem á sviði verkfræði, lögfræði, viðskiptafræði eða stefnumótunar. „Verð á þjónustu umrædds ráðgjafa er í fullu samræmi við það sem tíðkast á ráðgjafamarkaði," segir Hjörleifur að lokum í yfirlýsingunni.
Tengdar fréttir Náinn vinur Kjartans fær 1,2 milljónir í þóknun frá OR Náinn vinur og stuðningsmaður Kjartans Magnússonar, varaformanns stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, fær 1,2 milljónir króna í þóknun á hverjum mánuði fyrir ráðgjafastörf sem hann innir af hendi fyrir Reykjavík Energy Invest. 3. nóvember 2008 18:30 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira
Náinn vinur Kjartans fær 1,2 milljónir í þóknun frá OR Náinn vinur og stuðningsmaður Kjartans Magnússonar, varaformanns stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, fær 1,2 milljónir króna í þóknun á hverjum mánuði fyrir ráðgjafastörf sem hann innir af hendi fyrir Reykjavík Energy Invest. 3. nóvember 2008 18:30