Össur: Seðlabanki og ESB ekki grundvöllur að stjórnarslitum 4. nóvember 2008 11:20 MYND/Anton
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að Seðlabankinn eða Evrópusambandið séu ekki grundvöllur að stjórnarslitum og ekki séu brestir í stjórnarsamstarfinu. Össur var spurður út í ólíkar skoðanir stjórnarflokkanna eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Fram hefur komið í Fréttablaðinu að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi látið bóka á ríkisstjórnarfundi að Davíð Oddsson starfi ekki í umboði flokksins sem seðlabankastjóri. Hafa ráðherrar kallað eftir brottvikningu hans en Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur ekki ljáð máls á því. Þá er ágreiningur milli stjórnarflokkanna í Evrópumálum en Samfylkingin hefur lýst því yfir að leiðin út úr erfiðleikunum sé meðal annars að sækja um aðild að ESB. Össur sagði í dag að ríkisstjórnin væri nú að takast á við afleiðingar bankahrunsins og það hefði ekki gefist tími til að ræða ESB-mál en að Seðlabankann hefði stundum borið á góma. Seðlabankinn og ESB væru ekki grundvöllur að stjórnarslitum. „Alla vega ekki núna, það er ekkert í þessari stöðu sem bendir til þess," sagði Össur. Hann sagði enn fremur að flokkarnir hefðu mismunandi afstöðu í einstökum málum en það væri ekkert sem gerði það að verkum að það væru brestir í stjórnarsamstarfinu. Ríkisstjórnin væri að takast á við afleiðingar bankahrunsins og hún hefði gert það af mikilli einlægni og eftir bestu getu.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira