Innlent

Deilur innan ÁTVR á Akureyri

Uppnám er innan ÁTVR á Akureyri eftir að verslunarstjóri jós svívirðingum yfir starfsfólk sitt og lagði hendur á undirmann í samkvæmi. Níu starfsmenn hættu störfum vegna málsins. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að verslunarstjórinn njóti trausts.

Fyrir hálfum mánuði ákvað starfsfólk Vínbúðar ÁTVR á Akureyri að leigja sumarhús og gera sér glaðan dag. En gleðin fór úr böndunum og staðhæfa starfsmenn, sem þó vilja ekki koma fram undir nafni, að drykkja verslunarstjórans hafi farið úr böndunum í teitinni. Hafi hann ausið svívirðingum yfir starfsmenn og lagt hendur á fólk. Meðal ásakana megi nefna að verslunarstjórinn hafi staðhæft að undirmenn hans gættu ekki trúnaðar og væru lausmálgir um komur og kaup viðskiptavina.

Daginn eftir hittist meirihlutinn af undirmönnum verslunarstjórans og gerði þá kröfu til stjórnar ÁTVR að annað hvort hættu þeir störfum strax eða þá að verslunarstjórinn yrði látinn fara. Tekið skal fram að megnið að þessum starfsmönnum eru sumarafleysingastarfsmenn eða lausráðnir en einn mun þó fastráðinn. ÁTVR sendi fulltrúa norður til Akureyrar í starfsmannaviðtöl en niðurstaðan varð að verslunarstjórinn hefði ekki brotið þannig af sér að nauðsynlegt væri að láta hann víkja. Hann mætti því sitja áfram. Þetta varð til þess að níu starfsmenn hættu störfum.

Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir málið erfitt, en að fyrirtækið beri fullt traust til verslunarstjórans.

Starfsfólkið bendir á að verslunarstjórinn hafi farið í áfengismeðferð og drykkja hans í samkvæminu sýni að hann eigi við vanda að stríða. Spurð hvort rétt sé að fallinn alkóhólisti stjórni vínbúð, segir aðstoðarforstjórinn að fyrirtækið fari ekki í manndómsgreiningu þó fólk hafi farið í meðferð og leitað lausna á sínum vandamálum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×