Slökkvilið tapar Hringrásarmáli í Hæstarétti 8. maí 2008 16:59 Frá slökkvistarfi í Hringrásarbruna. MYND/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm í máli slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á hendur endurvinnslufyrirtækinu Hringrás vegna mikils bruna á athafnasvæði Hringrásar í nóvember. Slökkvilið krafði fyrirtækið um rúmar 25,6 milljónir króna. Málið snerist um það að slökkviliðinu gekk erfiðlega að ráða við eldinn og fékk því aðstoð frá fyrirtækinu E.T. sem er í nágrenni Hringrásar í Sundahöfn. Vélar E. T. skemmdust í brunanum og þá þurfti að hreinsa til á lóð E.T. Fór því félagið fram á að vátryggingarfélag Hringrásar greiddi því skaðabætur. Því hafnaði vátryggingafélagið á þeim grundvelli að dekkjahrúgan sem björgunaraðgerðir E.T. hefðu einkum beinst að hefði verið ótryggð. Í framhaldinu ákvað stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins að greiða þennan kostnað E.T. en höfðaði jafnframt mál á hendur Hringrás til þess að fá kostnaðinnn endurgreiddan. Í dómi Hæstaréttar sagði að E.T. ehf. hefði orðið fyrir tjóni vegna slökkvistarfsins. Samkvæmt lögum hefði félagið eignast kröfu á hendur slökkviliðinu vegna endurgjalds fyrir veitta þjónustu við slökkvistarfið og lagfæringar á eigin athafnasvæði í framhaldi af því. Hins vegar hefði engum stoðum verið rennt undir þá staðhæfingu slökkviliðsins að Hringrás hefði valdið E.T. tjóni og að fyrirtækið hefði af þeim sökum eignast skaðabótakröfu á hendur Hringrás sem slökkviliðið hefði fengið framselda. Brast því lagagrundvöll fyrir kröfu slökkviliðs eins og hún var fram sett og varð því að sýkna Hringrás að mati Hæstaréttar.
Mest lesið Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Innlent Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Erlent Fresta leit að Sigríði Innlent „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Innlent Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Innlent Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Innlent Fleiri fréttir „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Fresta leit að Sigríði Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Uppnám á Alþingi og í beinni frá Bíladögum „Stjórnlaus“ ríkistjórnin beiti rökum úr verkfærakistu Trumps Þingmenn stjórnarandstöðu foxillir yfir því að funda á sunnudegi Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Hár orkukostnaður er áhyggjuefni hjá atvinnulífinu Leitað að konu á sextugsaldri, fíkniefni á landamærum og skundað á Þingvöll Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Sjá meira