Ámælisvert siðareglubrot Víkurfrétta Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. maí 2008 11:59 Páll Ketilsson.
Vefmiðillinn Víkurfréttir telst að mati siðanefndar Blaðamannafélags Íslands hafa gerst sekur um ámælisvert brot gegn 3. grein siðareglna félagsins. Í þeirri grein er blaðamönnum boðið að forðast allt sem valdið getur saklausu fólki eða fólki sem á um sárt að binda óþarfa sársauka eða vanvirðu. Málsatvik eru þau að Víkurfréttir birtu í febrúar frétt þar sem sorp frá nafngreindum aðila var sagt hafa fundist á Miðnesheiði. Var fréttin skrifuð sem beint ávarp til viðkomandi sem að lokum var beðinn um að koma sorpinu til eyðingar. Í sorpinu var meðal annars póstur stílaður á aðilann. Nefndur aðili kom á skrifstofu Víkurfrétta og kvartaði yfir fréttaflutningnum. Áttu nokkur bréfaskipti sér stað milli ritstjórnar Víkurfrétta og kvartandans í kjölfarið. Fóru leikar svo að kæra var lögð fram til Blaðamannafélagsins. Segir í kærunni „að þær ærumeiðingar og aðdróttanir sem Víkurfréttir kusu að setja fram gegn kæranda, án nokkurs undanfara sem skýrt gæti tilefnislausa árás blaðsins, hafa bakað henni og fjölskyldu hennar mikinn skaða." Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, ritar meðal annars bréf til kæranda og segist þar „harma það tjón sem þú telur þig hafa orðið fyrir vegna birtingu þeirra. Jafnframt bið ég þig afsökunar á nafnbirtingu, sem var þó kippt í liðinn afar fljótt eftir birtingu fréttarinnar." Telur siðanefnd að birting á nafni kæranda hafi verið óþörf og ógætileg. Þá beri það vott um óvönduð vinnubrögð að gera enga tilraun til að hafa samband við kæranda og falast eftir skýringum þaðan á því hvers vegna bréf stílað á hann hafi fundist í sorpinu. Telur siðanefndin Víkurfréttum til málsbóta að miðillinn fjarlægði fréttirnar af vefnum í kjölfar athugasemda auk þess sem ritstjóri hafi lagt fram afsökunarbeiðni sína. Engu að síður telur nefndin brotið ámælisvert.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira