Innlent

Áfrýjun í Mýrarhúsaskólamáli óákveðin

Seltjarnarnes.
Seltjarnarnes.

Ekki hefur verið ákveðið hvort Mýrarhúsaskólamálinu svokallaða verði áfrýjað til hæstaréttar, að sögn Valgeirs Pálssonar, forstöðumanns lögfræðideildar Tryggingamiðstöðvarinnar. Valgeir segir að enn eigi eftir að fara yfir gögn í málinu og ákvörðun um áfrýjun muni ekki liggja fyrir á allra næstu dögum.

Í Mýrarhúsaskólamálinu var móðir telpu við skólann dæmd til að greiða kennara 10 milljónir króna í skaðabætur auk málskostnaðar vegna slyss sem varð þegar telpan skellti hurð á höfuð kennarans með þeim afleiðingum að kennarinn hlaut 25% varanlega örorku. Móðirin var tryggð hjá Tryggingamiðstöðinni sem ber að greiða kennaranum bæturnar samkvæmt dómi héraðsdóms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×